Í Tónhyl X fá ungir lagahöfundar fyrsta flokks stúdíóaðstöðu, þjálfun í tónlistargerð og tækifæri til að verða hluti af einstöku samfélagi.
Stúdíó og samfélag fyrir unga lagahöfunda. FL Studio · Logic Pro · Allur búnaður á staðnum.
Nýtt námskeið sérstaklega hannað fyrir yngri lagahöfunda — kynning á tónlistargerð, pródúseringu og upptökum í fyrsta flokks stúdíóaðstöðu.
Ertu að leita af
Grunnnámskeið í tónlistargerð — pródúsering, upptökur og lagasmíð. Kennt á FL Studio og Logic Pro í stúdíóum Tónhyls X.
Nýtt námskeið sérstaklega fyrir yngri lagahöfunda — kynning á tónlistargerð, pródúseringu og upptökum í stúdíói. Skráning opin á Abler — lokar 4. október kl. 23:59.
Eitt 5 klukkustunda námskeið í tónlistargerð í tölvu þar sem m.a. er farið í pródúseringu, upptökur og lagasmíð. Þátttakendur vinna saman í hópum. Markmiðið er að þátttakendur fái grunnverkfærin í FL Studio og Logic Pro.
Nýtt námskeið fyrir eldri lagahöfunda — dýpri fókus á sköpun, pródúseringu og útgáfu. Skráðu þig á póstlista til að fá tilkynningu þegar nánari upplýsingar liggja fyrir.
Tónlistarcamp þar sem pródúserar og artistar vinna saman í stúdíóunum okkar. Tvær útgáfur — heil helgi eða einn dagur.
Hugmyndafræðin á bakvið Tónhyl X, kennsluaðferðirnar okkar og hvernig þú getur orðið bakhjarl og hluti af þessu.
Í Tónhyl X er lögð mikil áhersla á að lagahöfundar geti unnið sjálfstætt, þróað sína eigin rödd og myndað tengsl við aðra. Við viljum búa til rými þar sem ungt fólk getur gert það sem það elskar.
Við setjum upp umhverfi þar sem þátttakendur fá verkfæri og nota þau við lagasmíðarnar. Ekki mikil bein kennsla — við látum þig læra með því að gera. Kennt á FL Studio og Logic Pro.
Tónhylur X er opinn öllum sem vilja læra tónlistargerð, hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn. Mikil áhersla er lögð á popp- og rapptónlist en við tökum vel á móti öllum stílum.
Í lok námskeiðs er markmiðið að þátttakendur geti unnið sjálfstætt í stúdíóunum. Við viljum sjá þig finna þinn stíl og gefa út.
Umsjón námskeiða er í höndum Núma Steins sem hefur mikla reynslu af að vinna með ungu fólki og í tónlistargerð. Þá starfar einnig mikið af atvinnutónlistarfólki í húsinu sem lítur við í kennslustundir og gefur ráð.
Spurningar? tonhylurx@tonhylur.is · Skilmálar →
Við erum alltaf opin á nýtt samstarf. Sem bakhjarl fáið þið sýnileika á viðburðum, námskeið og efni sem við framleiðum — á samfélagsmiðlum, lokasýningum og fleiru. Stórum sem smáum.